Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Maður fékk járnstöng í andlitið á vinnustað sínum í Laugardal í dag. Hann fékk skurð á ennið og var fluttur í sjúkrabíl á bráðamóttökuna. Innlent 20.6.2025 20:20
Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Fulltrúi ríkisstjórnarinnar sat á dögunum fund með utanríkisráðherrum og öðrum fulltrúum fjórtán Evrópuríkja sem hafði það að marki að samhæfa aðgerðir gegn skuggaflota Rússa. Flotann nota Rússar til að komast undan þvingunaraðgerðum Evrópusambandsins og samstarfsríkja. Innlent 20.6.2025 20:15
Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Verslunareigandi segir að gangi áform heilbrigðisráðherra eftir um breytingar á löggjöf fyrir tóbaks- og níkótínvörur muni fyrirtæki hennar fara í þrot. Hún gagnrýnir stjórnvöld fyrir samráðsleysi og segir alla vilja vanda til verka þegar kemur að sölu nikótíns. Innlent 20.6.2025 19:44
Lýsa eftir Hlyni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Hlyni Gíslasyni, 32 ára. Hann er um 184 sentimetrar á hæð og snöggklipptur. Innlent 20.6.2025 15:01
Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Pavel Durov, stofnandi samskiptaforritsins Telegram, segir að öll þau rúmlega hundrað börn sem hann hafi feðrað í gegnum árin muni skipta jafnt með sér auðæfum hans að honum gengnum. Auður Durovs er nú metinn á tæplega 14 milljarða bandaríkjadala, rúmlega 1.700 milljarða króna. Erlent 20.6.2025 14:56
Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Ekki yrði lengur refsilaust fyrir einstaklinga að hindra rannsókn lögreglu á nánum vandamönnum þeirra samkvæmt áformum dómsmálaráðherra. Nýlegt dæmi er um að forráðamenn pilts sem varð ungri stúlku að bana hafi reynt að hylma yfir með honum. Innlent 20.6.2025 14:47
Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Starfsmaður leikskóla hefur verið sýknaður af ákæru fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot gegn barni á leikskólanum. Barnið hlaut sýnilega áverka á öxl eftir að starfsmaðurinn þreif í það en ekki var talið sannað að starfsmaðurinn hefði haft ásetning til að meiða barnið. Innlent 20.6.2025 14:27
Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Breska þingið samþykkti frumvarp sem leyfir dauðvona fólki á Englandi og í Wales að velja að binda enda á líf sitt. Skiptar skoðanir voru um frumvarpið og skipti hópur þingmanna um skoðun frá fyrri atkvæðagreiðslu um það í vetur. Erlent 20.6.2025 14:15
Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skipulagðri brotastarfsemi er umfangsmikil og enn yfirstandandi samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Lagt hefur verið hald á muni og efni til fíkniefnaframleiðslu. Innlent 20.6.2025 14:07
Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Gæsluvarðhald yfir franskri konu á sextugsaldri, sem grunuð er um að hafa ráðið eiginmanni sínum og dóttur bana á Edition-hótelinu í Reykjavík, hefur verið framlengt um tvær vikur á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 20.6.2025 13:42
Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað fimm einstaklinga í vikulangt gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að fíkniefnaframleiðslu. Þeir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu víða um land, meðal annars á Raufarhöfn, á miðvikudag. Innlent 20.6.2025 13:18
„Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Jens Garðar Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur það heilaga skyldu þingflokksins að standa gegn „dellumálum“ eins og veiðigjaldafrumvarpinu. Hann muni gera það í allt sumar ef þörf er á. Innlent 20.6.2025 13:08
Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Í hádegisfréttum verður fjallað um áform ríkisstjórnarinnar um að endurskoða innviðagjaldið sem fyrri ríkisstjórn ætlaði að taka af skemmtiferðaskipum. Innlent 20.6.2025 11:37
Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Tomasz Chrapek hefur verið skipaður nýr formaður innflytjendaráðs og tekur hann við af Paolu Cardenas. Innlent 20.6.2025 11:34
Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Réttlæti og ábyrgð: Vernd barna í Úkraínu“ er yfirskrift opins fundar á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og UNICEF á Íslandi sem fram fer í Auðarsal í Veröld - húsi Vigdísar milli klukkan 12 og 13:15 í dag. Innlent 20.6.2025 11:32
„Er allt komið í hund og kött?“ Hið svokallaða gæludýrafrumvarp hefur verið afgreitt úr nefnd og er reiðubúið til annarrar umræðu í þinginu. Þingmaður Framsóknar segir frumvarpið fela í sér réttindaskerðingu fólks sem af heilsufarslegum eða félagslegum ástæðum getur ekki búið nærri gæludýrum. Innlent 20.6.2025 11:26
Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, renndi fyrir laxi í Elliðaánum við opnun ánna í morgun. Síðustu ár hefur verið hefð fyrir því að Reykvíkingur ársins opni árnar með borgarstjóra en samkvæmt svörum frá borginni var hann erlendis og verður því ekki tilkynntur fyrr en í júlí. Innlent 20.6.2025 11:25
Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Átta eru sagðir slasaðir, þar af einn alvarlega, eftir að sporvagni var ekið á matarvagn í miðborg Gautaborgar í Svíþjóð í nótt. Vitni segja að sporvagninn hafi verið á óvenjumikilli ferð þegar slysið varð. Erlent 20.6.2025 11:12
Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Ráðherra stafrænna málefna í Danmörku segist bálreiður yfir auglýsingaherferð tæknirisans Meta um aldurstakmarkanir á samfélagsmiðlum. Fyrirtækið ætti frekar að nota digra sjóði sína til að grípa sjálft til aðgerða til að vernda börn fyrir skaðlegum áhrifum samfélagsmiðlanotkunar. Erlent 20.6.2025 10:28
Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Rúmlega níu þúsund umsóknir bárust í grunn- og framhaldsnám í Háskóla Ísland. Í tilkynningu segir að fjölgun hafi verið í umsóknum í lögfræði, hagfræði, næringarfræði, tungumálum og leikskólakennarafræði. Íslenska sem annað mál áfram með flestar umsóknir. Innlent 20.6.2025 10:00
Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf á Írlandi fyrir sex árum er með tilgátu um að leigumorðingi hafi farið mannavillt og drepið hann í staðinn fyrir annan Íslending. Írskir lögreglumenn eru væntanlegir til Íslands í næstu viku til þess taka skýrslu af tugum manna vegna hvarfs Jóns Þrastar. Innlent 20.6.2025 09:12
Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, hefur hafnað tillögu NATO um að framlög aðildarríkja til varnarmála verði hækkuð í fimm prósent af vergri landsframleiðslu. Hann segist vilja sveigjanlegri formúlu og að slík markmið séu ekki aðeins ósanngjörn heldur hafi þau einnig þveröfug áhrif. Erlent 20.6.2025 08:15
Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Útlit er fyrir fremur hæga breytilega átt í dag þar sem verður skýjað með köflum, lítilsháttar skúrir á víð og dreif og milt veður. Það verður heldur léttara yfir á suðaustanverðu landinu þar sem hiti getur náð að 17 stigum í dag þegar best lætur. Veður 20.6.2025 07:09
Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, fundar í dag í Genf með utanríkisráðherrum Bretlands, Frakklands og Þýskalands. Markmið fundarinst er að reyna að finna diplómatíska lausn við stríði Ísrael og Íran. Donald Trump hefur tilkynnt að hann ætli að gefa sér tvær vikur til að ákveða hvort hann blandi sér í stríðið. Erlent 20.6.2025 06:44